Leiðbeiningar

Hvernig notar þú TimeControl

Ítarlegar leiðbeiningar sem sýna hvernig þú notar helstu hluta kerfisins: Dashboard, sölureikninga, bankakröfur, áskriftir og viðhengi.

01

Dashboard

Dashboard gefur þér yfirsýn yfir reksturinn á einum stað. Þar sérðu heildarveltu, bankastöðu, innheimtu, ógreidda reikninga og sjóðstöðu.

  • Veldu fyrirtæki efst til hægri.
  • Skoðaðu lykiltölurnar efst á síðunni.
  • Notaðu gröfin til að sjá stærstu viðskiptavini og ógreidda reikninga.
  • Fylgstu með sjóðstöðu og stöðu rekstrar í rauntíma.
Dashboard leiðbeiningar í TimeControl
02

Búa til sölureikning

Sölureikningur er stofnaður með því að velja viðskiptavin, dagsetningar og reikningslínur.

  • Veldu viðskiptavin eða stofnaðu nýjan.
  • Veldu verkefni ef reikningurinn tengist ákveðnu verki.
  • Veldu útgáfudag, gjalddaga og eindaga.
  • Bættu við athugasemd ef texti á að birtast á reikningi.
  • Vistaðu reikning eða sendu hann með tölvupósti.
03

Reikningslínur

Bættu vörum eða þjónustu við reikninginn með magni, verði og VSK.

  • Bættu við nýrri línu.
  • Veldu vöru eða skrifaðu eigin texta.
  • Skráðu magn og verð.
  • Veldu VSK prósentu.
  • Yfirfarðu samtölur áður en þú vistar.
04

Stofna bankakröfu

Bankakröfur einfalda innheimtu og hjálpa þér að fylgjast með greiðslum.

  • Notaðu AI aðstoð til að fylla út drög að kröfu.
  • Veldu banka og upphæð.
  • Veldu viðskiptavin og dagsetningar.
  • Tengdu kröfu við sölureikning þegar það á við.
05

Áskriftir og endurteknar kröfur

Áskriftir nýtast fyrir mánaðarlega reikninga, endurteknar kröfur og samninga.

  • Veldu banka og tegund samnings.
  • Veldu upphafsdag og lengd samnings.
  • Veldu greiðslutíðni.
  • Vistaðu samninginn eða áskriftarkröfuna.
06

Viðhengi og tölvupóstur

Bættu við skjölum og kvittunum þegar reikningur er sendur með tölvupósti.

  • Vistaðu reikninginn fyrst.
  • Veldu skjöl undir viðhengi með tölvupósti.
  • PDF útgáfa reiknings fer sjálfkrafa með.
  • Sendu reikninginn með tölvupósti.